Áður en Alþingi hefur samþykkt lög um Stafræna heilsu er heilbrigðisráðuneytið á lokametrum með umfangsmikið útboð vegna verkefnisins. Frestur til að skila tilboðum í hugbúnaðarsmíðina rennur út á morgun. Gagnrýni hefur komið frá bæði Landspítala og Persónuvernd við frumvarpsdrögin og netöryggissérfræðingar vara við vaxandi ógnarumhverfi. Árásargeta gervigreindar hafi tugfaldast á nokkrum vikumRíkið bíður nú eftir tilboðum í upplýsingatækniþjónustu fyrir Stafræna heilsu, en það er eitt stærsta verkefnið sem hið opinbera hefur ráðist í á sviði stafrænna lausna. Verkefnið miðar að því að innleiða stafrænar lausnir í heilbrigðisgeiranum og ná fram hagræðingu. Urgur er í stjórnendum hugbúnaðarfyrirtækja vegna útboðsins. Þeir óttast að ríkið nái til sín bestu starfskröftunum úr einkafyrirtækjum