„Ef þú ert að stoppa einhverja menn sem eru þekktir glæpamenn, átt þú þá að hætta að stoppa þá? Áttu þá bara að hætta og leyfa þeim að halda áfram að gera sína ólöglegu hluti?“ að þessu spyr lögreglumaður númer 2451 í þætti Kveiks sem sýndur var í kvöld.Þar sem lögreglumaðurinn sinnir eftirliti á rúntinum með öðrum lögreglumönnum á kvöldvakt endurómar hann áhyggjur fjölda kollega sinna af því hvernig tekið sé á ofbeldi og hótunum gegn lögreglumönnum. Þeir segja afleiðingarnar litlar sem engar sökum þess hve illa sé staðið að rannsókn slíkra brota og þær felldar niður í unnvörpum.Lög eiga að veita lögreglumönnum sérstaka vernd, en margir þeirra segja hana litla eða enga þegar á reynir. Kveikur rýndi í mál þar sem ráðist var að lögreglumönnum eða heimilum þeirra í hefndarskyni. Í engu þeirra