Eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri 2020 og fór að hluta yfir varnargarðinn þurfti að bæta við varnarmannvirkin fyrir ofan bæinn. Framkvæmdir hófustu 2024 og stefnt er að því að þeim ljúki 2028.Ísafjarðarbær hélt íbúafund á mánudag þar sem landslagshönnuðir, verktakar og fulltrúi Ofanflóðasjóðs fóru yfir stöðuna á framkvæmdum og endanlegt útlit Bæjarbúar veltu meðal annars vöngum yfir leiðigarðinum sem kemur til með að vernda höfnina.Að framkvæmdum loknum verður hann það fyrsta sem fólk sér þegar það ekur inn í bæinn. Á fundinum kom fram að hönnun mannvirkjanna ræðst að einhverju leyti af þeim varnarmannvirkjum sem reist voru á 10. áratugnum. Lögum samkvæmt má ekki hanna varnir svo að þær auki hættu annars staðar.Hannibal Hafberg, bæjarfulltrúi Ísafjarðarbæjar og íbúi á Flateyri segir íbú