Myndband af hópárás ungmenna á feðga fyrir utan Mjóddina í Breiðholti hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir að svona mál séu ekki bundin við Mjóddina. Ofbeldismál af þessu tagi séu oftast á milli aðila sem þekkjast.Greint var frá myndbandinu á vef Vísis. Þar sést hvernig hópur ungmenna veitist að feðgum þannig að þeir liggja eftir í blóði sínu, rétt hjá Mjóddinni.Árásarmennirnir voru á aldrinum 15-20 ára og lögregla hefur haft afskipti af mörgum þeirra áður. Sonurinn fékk glerflösku í höfuðið og var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn á lokametrunum. Hún segir þekkt að myndir og myndbönd af líkamsárásum fari í dreifingu. „Það er alltaf verið að stofna nýjar og nýjar Insta