Tvö mál komu upp á föstudag þar sem tilkynnt var að barn hefði mætt með vopn í grunnskóla. Lögregla var kölluð í Sæmundarskóla í Grafarholti í Reykjavík þegar tilkynnt var að nemandi hefði verið með hníf og beitt honum í átökum við samnemanda. Þrátt fyrir það fann lögregla engan hníf á svæðinu. Í öðru máli mætti barn með heimatilbúið vopn.