Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili hans. Þetta var í þriðja sinn á innan við tveimur árum sem lögreglumönnum var ógnað á heimilum þeirra.Forsaga málsins er afskipti lögreglumannsins af þekktum afbrotamanni vegna umferðarlagabrota í byrjun árs 2025. Lögreglu barst síðar ábending um að ljósmynd af lögreglumanninum væri í dreifingu meðal undirheimamanna með ósk um nafn hans og heimilisfang. Nokkrum dögum síðar komu fimm menn að heimili lögreglumannsins, vopnaðir og með lambhúshettur. HÉLT AÐ HANN HEFÐI FENGIÐ VITLAUSAN GAGNAPAKKA Lögreglumaðurinn, sem kemur fram undir nafnleynd í viðtali við Kveik í kvöld, segir fjölskylduna hafa þurft að yfirgefa heimilið strax.„Við þurftum að