Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“

Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu um gervigreind á Alþingi, meðal annars til að ræða þátttöku Íslands í alþjóðlegu ákalli um öflug líkön og hlutverk landsins hvað það varðar. Snorri Másson þingmaður Miðflokksins mælti fyrir þessu á Alþingi í dag.„Á allra síðustu dögum og vikum höfum við horft upp á framfarir í þróun gervigreindar sem hafa verið örari en djörfustu spár gerðu ráð fyrir. Eðlilega er margt rætt og ritað um tækifærin fyrir Íslendinga og fyrir mannkynið ef því auðnast að nýta þessa nýju tækni til góðs. En til þess að svo megi verða þarf að vanda sérstaklega til verka núna.“Snorri sagði að vanda yrði til verka. Flestir væru sammála því að ef menn héldu ekki rétt á málum yrði raunveruleg hætta á að þeir misstu stjórn á tækninni með ófyrirséðum afleiðingum.Miðflokkur
Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar