Auglýsingatekjur hlaðvarpa voru rúmlega hálfur milljarður króna í fyrra. Tekjur þeirra hafa aukist stöðugt frá 2018 og tæplega tífölduðust á milli 2020 og 2025. Samkvæmt Hagstofunni er hlutdeild hlaðvarpa um 4% á auglýsingamarkaði.„Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun náttúrlega,“ segir Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Einnar pælingar. Hann segir þróunina ekki koma sér á óvart enda séu vinsældir hlaðvarpa sífellt að aukast.„Það sem við búum við í hlaðvarpsgeiranum er að við höfum minni yfirbyggingu og þurfum kannski ekki að sinna því almenna hlutverki sem fjölmiðlar eru í. Þar af leiðandi getum við boðið upp á mjög góða vöru, tiltölulega ódýrar auglýsingar, fyrir mikla dreifingu.“Þórarinn bendir á að efni frá honum sé í talsverðri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem auglýse