Hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason þróuðu og hönnuðu samfélagsmiðilinn Alvildu sem ætlaður er fimmtán ára og eldri. Notendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum sem Ragna segir að komi í veg fyrir stofnun gervireikninga og botta.„Þá getum við líka takmarkað það sem er alltaf í umræðunni, það er aldurstakmarkið,“ segir Ragna. Alvilda er til sem smáforrit fyrir Android og Apple auk þess sem nú er komin vafraútgáfa. Ekkert kostar að skrá sig á samfélagsmiðilinn. > Við fórum óformlega í loftið 22. ágúst og fórum síðan og kynntum vefinn á Akureyrarvöku því Snorri er frá Akureyri og á Ljósanótt því ég er úr Keflavík. Þá fórum við bara í að byggja meira upp og ákváðum að bíða þangað til værum komin með vafraútgáfuna vegna þess að það skiptir svolítið marga máli, sérstaklega ef við