Mikill þrýstingur er á Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur eftir að hún lét orð falla í viðtali sem túlka má sem daður við samsæriskenninguna um útskiptin miklu.Í viðtali við danska miðilinn BT sagði Mette að hún væri Evrópubúi, Dani og frá Álaborg.„Og ég er ekki fylgjandi miklum útskiptum (d. befolkningsudskiptning). Ég trúi því að hér þurfi að vera sterk meirihlutamenning,“ sagði Mette í viðtalinu sem túlkað hefur verið sem svo að hún sé fylgjandi samsæriskenningunniÍ færslu sem Mette birti síðar meir á Facebook hafnaði hún því að vera sett í sama flokk og samsæriskenningasmiðir, öfgamenn á ystu hægri vængjum eða fasískar hreyfingar. Hún sagðist engu að síður vera fylgjandi strangri útlendingastefnu.Það er þó ekki afstaða hennar til innflytjendamála yfirhöfuð sem hefur valdið hv