Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur falið skipulagsfulltrúa að koma brunavörnum við Tónlistarskóla Húsavíkur í viðunandi horf eftir að ábending barst frá skólastjóra tónlistarskólans.Það eru fjögur ár síðan Guðni Bragason, skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur, benti bæjaryfirvöldum og slökkviliðinu í Norðurþingi á þá staðreynd að brunavörnum væri verulega ábótavant í álmu skólans. Skólinn er í sama húsnæði og Borgarhólsskóli, grunnskólinn í bænum.Árið 2022 fór fram brunaæfing og kom í ljós að enginn tónlistarkennari heyrði í brunabjöllunni í sínum stofum. Guðni vakti athygli á þessu við slökkviliðsstjóra sem ætlaði að ganga í verkið. Í erindi sem Guðni sendi fyrir hönd Tónlistarskólans til bæjaryfirvalda í Norðurþingi í nóvember segir um spjall hans við slökkviliðsstjórann: „Var