Utanríkisráðuneytið segir að allar undanþágubeiðnir fyrirtækisins Vélfags hafi verið teknar til efnislegrar meðferðar þrátt fyrir kvartanir fyrirtækisins um að engin svör hafi fengist við umsóknum um undanþágur.Fyrirtækið Vélfag hefur undanfarið kvartað undan því að geta ekki greitt skuldir fyrirtækisins til íslenskra kröfuhafa. Þar ber helst að nefna lífeyrissjóði og leiguskuldir.Samanlögð skuld fyrirtækisins við lífeyrissjóði er um 23 milljónir króna vegna vangreiddra iðgjalda. Einnig skuldar félagið FM-húsum ehf. 50 milljónir króna vegna vangoldinnar leigu.Aðrar skuldir eru gagnvart skattinum, verkalýðsfélögum, þjónustuaðilum, birgjum og öðrum kröfuhöfum líkt og Arion banka og Landsbankanum. ÓSKAÐ EFTIR SVÖRUM UM UNDANÞÁGUR Vélfag er fyrsta og eina íslenska fyrirtækið sem hefur verið