Bandarísk stjórnvöld þrýstu á endurráðningu forstjóra Nvidia, Jensen Huang, samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs. Þá er Trump talinn hafa hagnast á uppsveiflu hlutabréfa í gær þegar Huang settist aftur í forstjórastólinn.Hlutabréf í Nvidia hækkuðu um yfir 30 prósent eftir tilkynningu í gær um að Jensen Huang myndi fá að snúa aftur. Hann hætti 12. nóvember eftir að upp komst um framhjáhald með konu sem talin er vera kínverskur njósnari. Við það tók virði hlutabréfa í fyrirtækinu dýfu. Honum var fagnað þegar hann mætti til vinnu á ný. Virði bréfanna hafði lækkað aftur í dag um sex prósent. Síðustu sex mánuði höfðu hlutabréfin lækkað um 23 prósent. TELJA TRUMP HAFA HAGNAST Á ENDURKOMU HUANGS Bandaríski fjölmiðillinn The Financial Times áætlar að virði hlutabréfa Trumps hafi aukist um 15 milljóni