Íbúar á Selfossi og í næsta nágrenni urðu margir varir við miklar þrumur og úrhelli í nótt og vöknuðu einhverjir úr fastasvefni vegna hávaða í morgunsárið. Búast má við eldingaveðri á Suður- og Suðausturlandi næstu daga vegna merkja um óstöðugt loft.„Það skapar hinar fullkomnu aðstæður fyrir þrumur og eldingar til að myndast,“ segir Hera Guðlaugsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.Eldingarnar voru ekki óvenjulega margar samkvæmt mælingum Veðurstofunnar en þær voru afar háværar ef marka má lýsingar íbúa. Nokkrir hafa birt færslur á samfélagsmiðlum þar sem þeir lýsa því að hafa vaknað seint í nótt. Einn þeirra, Bjarkar Snorrason, lýsir rafmagnstruflunum vegna veðursins. > „Og í þessum skrifuðu orðum kom stærsta þruman og sló þá liðinn út í rafmagnstöflunni. Rigningin sem fylgdi í