Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og leiðtogi danskra jafnaðarmanna, segist andvíg fjölmenningarsamfélagi þar sem ólíkir menningarheimar eru settir á sama stall. Hún vill að Danmörk verði áfram kristið land og varar við þeim öflum sem grafa undan lýðræðinu innan frá. Hún sætir nú gagnrýni fyrir ummæli sín.