Fjöldi ferðamanna það sem af er ári er svipaður og á sama tíma í fyrra, en samsetning þeirra er breytt, samkvæmt nýrri greiningu Landsbankans. Tæplega tvær milljónir ferðamanna hafa heimsótt landið það sem af er ári, eða aðeins um 0,5% færri en á sama tíma í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu, þrátt fyrir talsvert minna flugframboð.Aðeins fleiri erlendir ferðamenn komu til landsins í október í ár en í fyrra. Fjöldi ferðamanna er áfram mjög svipaður milli ára þrátt fyrir minna flugframboð. Tengifarþegum og utanlandsferðum Íslendinga fækkar aftur á móti.Bandaríkjamenn eru stærsti einstaki hópur ferðamanna sem kemur til Íslands, eða rétt tæplega þriðjungur, og hefur það hlutfall lítið breyst síðustu ár. Hlutfall ferðamanna frá Kína og Kanada af heildarfjölda ferðamanna hefur aukist mikið