Sjö þingmenn Sjálfstæðisflokksins og jafnmargir þingmenn Miðflokksins standa saman að þingsályktunartillögu þar sem skorað er á dómsmálaráðherra að kanna möguleikann á því að umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi verði vistaðir í ríkjum utan Evrópu.Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, en aðrir sem að henni standa eru Ólafur Adolfsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Pétur Zimsen, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Jón Gunnarsson, Sigríður Á. Andersen, Snorri Másson, Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Ingibjörg Davíðsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson.Í tillögunni er skorað á dómsmálaráðherra að horfa sérstaklega til þess samstarfs sem Austurríki, Danmörk, Grikkland, Holland og