Aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris – hjálparsamtaka fyrir flóttafólk og hælisleitendur, fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sema er ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Mikill fjöldi fólks var saman kominn við aðalmeðferðina Semu til stuðnings.Málið snýst um fjársöfnun Solaris fyrir Palestínu snemma árs 2024. Fjársöfnuninni var hrint af stað til að koma einstaklingum sem höfðu hlotið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar út af Gasa og til Íslands.Solaris bar ábyrgð á framkvæmd söfnunarinnar, utanumhaldi og ráðstöfun þeirra fjármuna sem söfnuðust og Sema er forsvarsmaður samtakanna.Ákæran byggir á því að fjársöfnun Solaris hafi ekki verið tilkynnt til sýslumanns áður en hún hófst samkvæmt lögum um opinberar fjársafnanir. Tilkynn