Omar Sowe gekk til liðs við KR frá ÍBV fyrr í vetur á frjálsri sölu. Þessi 26 ára gamli Gambíumaður hefur leikið á Íslandi frá árinu 2022 og endurnýjar nú kynnin við Óskar Hrafn Þorvaldsson, sem fékk hann til Breiðabliks frá New York Red Bulls fyrir fjórum árum. Hann spilaði alls 28 leiki fyrir ÍBV og skoraði í þeim tíu mörk, en Omar sneri aftur til baka eftir krossbandaslit í sumar. Fótbolti.net ræddi við Omar um vistaskiptin og komandi tímabil í Vesturbænum.