Eftir nánast viðvarandi styrkingu um nokkurt skeið hefur gengi krónunnar, einkum gagnvart Bandaríkjadal, veikst eilítið að undanförnu en fátt gefur samt til kynna að hún muni gefa mikið eftir á næstunni, að sögn gjaldeyrismiðlara. Undirliggjandi viðskiptajöfnuður er í jafnvægi og jafnvel afgangur í þeim greinum sem hafa mest áhrif á gjaldeyrisflæði til landsins.