Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gerði samning utanríkisráðuneytisins við Nebraska, fyrirtæki Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar, að umræðuefni í störfum þingsins. Ræðan fór öfugt ofan í þingmenn meirihlutans sem sökuðu varaformanninn um lágkúru.Jens Garðar sagði að leiða mætti líkur að því að verktakasamningur við Nebraska, þar sem Heiða Kristín tók að sér að veita utanríkisráðherra ráðgjöf í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB í sumar, hefði verið gerður til að komast hjá því að launagreiðslurnar færu upp í útistandandi opinber gjöld. Vísaði hann í frétt Morgunblaðsins þar sem fullyrt var að eigendur Nebraska skulduðu opinber gjöld.Sagði Jens Garðar að með því að ráða verktaka til að sinna pólitískum störfum og ekki