Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um gervigreind. Snorri Másson, þingmaður flokksins, greindi frá þessu undir liðnum störf þingsins í dag. Hann sagði tilefni til að ræða hvort setja ætti öflugustu gervigreindarlíkönunum skorður og hvernig íslensk stjórnvöld hygðust fylgja eftir afstöðu sinni til eftirlits með þeim. Snorri sagði þróun gervigreindar hafa verið hraðari á síðustu vikum en djörfustu...