Innbrot í sveitasetur Vilhjálms Bretaprins

Tveir karlmenn hafa verið handteknir grunaðir um innbrot í sveitasetur Vilhjálms prins og Katrínar prinsessu í Sandringham. Lögreglan í Norfolk fékk símtal undir kvöld í gær og var henni tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir.Hundar, drónar og þyrla voru send á vettvang og mennirnir tveir handteknir. Þeir eru enn í haldi lögreglu. Húsið var mannlaust en Vilhjálmur og Katrín dvelja af og til á Anmer Hall-setrinu í fríum. Anmer Hall er sveitasetur með tíu svefnherbergjum og var brúðkaupsgjöf frá Elísabetu II drottningu heitinni.Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa af Wales.EPA / DIVYAKANT SOLANKI
Innbrot í sveitasetur Vilhjálms Bretaprins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar