Ók á mann, sagðist vera orðin of sein og keyrði burt

Kona sem ók á gangandi vegfaranda sumarnótt í júlí 2024 fékk í síðustu viku 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm. Hún var sakfelld fyrir að keyra án nægjanlegrar aðgæslu, hirða í engu um skyldur sínar eftir að hafa ekið á mann og fyrir að raska rannsóknarhagsmunum með því að yfirgefa vettvanginn áður en lögregla gat hafið rannsókn.Konan ók um Skeiða- og Hrunamannaveg við brú yfir Litlu-Laxá á Flúðum aðfaranótt sunnudagsins 14. júlí. Þar var þrennt gangandi á heimleið úr brúðkaupi í félagsheimilinu á Flúðum. Karl og kona voru á gangstéttinni og samsíða þeim gekk maður á götunni upp við gangstéttina. NÁÐI EKKI AÐ BREGÐAST VIÐ EFTIR AÐVÖRUNARHRÓP Kona í hópnum varð bílsins vör og hrópaði til að vekja athygli á honum. Maðurinn á götunni náði að líta aftur fyrir sig en honum gafst ekki tími
Ók á mann, sagðist vera orðin of sein og keyrði burt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar