Manchester United mun samkvæmt breskum fjölmiðlum ekki hafa úr miklu að moða í janúarglugganum, minna en 50 milljónir punda verða í boði fyrir Mauricio Pochettino til að styrkja leikmannahópinn. Búist er við því að argentínski stjórinn muni einungis reyna fá inn tvo leikmenn í glugganum og annar gæti komið á láni. United horfir í miðvarðarstöðuna, vinstri bakvörðinn og framherjastöðuna. Nathan Collins er sagður ofarlega á blaði en hann er miðvörður Brentford og írska landsliðsins. Hann ber fyrirliðabandið bæði hjá Brentford og hjá Heimi Hallgrímssyni í landsliðinu. Collins er 25 ára og kom frá Wolves sumarið 2023, en áður hafði hann verið hjá Stoke og Burnley.