Landsvirkjun hefur samið við austurríska fyrirtækið Andritz Hydro um endurnýjun á stjórnkerfum og varnarbúnaði allra þriggja aflstöðva Landsvirkjunar í Soginu. Tvö tilboð bárust í verkið og var tilboð Andritz Hydro metið hagstæðara. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið, að meðtöldum verksamningi við Andritz Hydro, nemur um 2 milljörðum króna.