Heimilið er enn sá staður þar sem konur og stúlkur eru í mestri hættu, samkvæmt nýrri skýrslu sem ber heitið Kvennamorð árið 2025. UN Women og skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og afbrot standa að henni. Í fyrra voru fimm konur drepnar af einhverjum sér nákomnum í heiminum á hverri klukkustund.„Þróunin hefur verið of hæg, að fara niður á við. Við sjáum að manndrápsmálum er að fækka á heimsvísu en að kvennamorðum virðist hins vegar fækka hægar,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. 60% GERENDA EINHVER NÁKOMINN Í skýrslunni kemur fram að 78 þúsund kvennamorð hafi verið framin í fyrra og af þeim voru 60% gerenda einhver nákominn fórnarlambinu. Það eru um 5 konur á hverri klukkustund eða 129 á dag.„Kvennamorð eru jafnan endirinn á einhverju sem hefur stað