„Mjög bjartsýnn“ að hægt verði að lækka vexti bráðlega

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra er mjög bjartsýnn á að verðbólga minnki og að hægt verði að lækka vexti um áramót. „Það virðist allt stefna í eina átt og ég er á þessum tíma mjög bjartsýnn.“Önnur umræða um fjárlagafrumvarpið verður í byrjun desember. Ríkisstjórnin afgreiddi í dag breytingatillögu við það til að bregðast við þróun hagkerfisins.Daði Már segir að aðhald verði aukið lítillega – til að auka svigrúm og tryggja hallaleysi fjárlaga. Skattar verði ekki hækkaðir og engar ríkiseignir seldar umfram það sem hafi verið tilkynnt. „Það eru alls konar tilfærslur að eiga sér stað.“Aðgerðirnar eru að hans sögn margir smáir hlutir. Þær verða gerðar opinberar eftir að fjárlaganefnd Alþingis hefur verið greint frá þeim.
„Mjög bjartsýnn“ að hægt verði að lækka vexti bráðlega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar