Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir fregnir af því að ráðamenn í Rússlandi ætli mögulega að senda kjarnorkusprengju á braut um jörðu alvarlegar. Hún segir að fylgst sé vel með þessu máli og að líklega verði það rætt á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel í næstu viku.