Allt að 700 þúsund rússneskir hermenn hafa fallið í innrásinni

Allt að 700 þúsund rússneskir hermenn hafa fallið í innrásinni í Úkraínu samkvæmt mati tveggja landflótta rússneskra miðla sem byggja á gögnum frá rússnesku hagstofunni.Fyrr í mánuðinum sögðu nokkrir alþjóðlegir miðlar fréttir sem byggðu á leka frá Rosstat þar sem fram kom að yfir 400 þúsund dauðsföll séu beintengd innrásinni. Gögnin innihalda meira en 11 milljónir dánarvottorða. Í þeim koma meðal annars fram upplýsingar um aldur hinna látnu, búsetu og hvar þeir létust. Miðlarnir Meduza og Mediazona segja frá því í gær að þeir hafi komist yfir enn fleiri og nýrri gögn sem fréttamenn þeirra báru saman við eigin gagnasafn. Af þeim megi ráða að dauðsföll hermanna í innrásinni hafi verið verulega vantalin og geti numið allt að 700 þúsund manns.
Allt að 700 þúsund rússneskir hermenn hafa fallið í innrásinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar