Skemmdarverk hafa verið unnin í Hellisskógi á Selfossi þar sem einhver hefur ítrekað farið um skóginn og höggvið niður tré með exi. Verknaðurinn hefur verið tilkynntur til lögreglu og biðlar Skógræktarfélag Selfoss til almennings um aðstoð við að hafa uppá hinum bíræfna skógarhöggsmanni.