Þjóðverjar eru að stofna nýja drónahersveit sem byggir á því sem Úkraínumenn hafa lært í átökunum við Rússa. Þá eru Þjóðverjar einnig að vinna með Úkraínumönnum að þróun samskiptakerfis, DELTA, en þetta þykir til marks um að Þjóðverjar ætli að læra af reynslu Úkraínumanna og að varnarsamstarf ríkjanna sé að aukast.