Brotið á rétti Tómasar þegar hann var áminntur

Landspítalinn fór ekki að lögum þegar hann áminnti Tómas Guðbjartsson lækni vegna myndatöku og myndbirtingar. Þetta er niðurstaða Kristínar Benediktsdóttur, umboðsmanns Alþingis.Landspítalinn áminnti Tómas fyrir að taka myndir af sjúklingi í hjartaþræðingarstofu spítalans og fyrir að birta mynd úr skurðaðgerð á Facebook-síðu sinni.Umboðsmaður segir að ákvörðun Landspítalans um áminningu ekki vera í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Auk þess hafi málsmeðferðin verið verulegum annmörkum háð.Vísir greindi fyrst fjölmiðla frá áliti umboðsmanns.Spítalinn afþakkaði einnig vinnuframlag Tómasar vegna þessa. Umboðsmaður Alþingis segir að sú ákvörðun hafi hvorki samrýmst kröfum sem leiða megi af óskráðri meginreglu um meðalhóf né skýrleikareglu. Auk þess segir hún að tafir sem urðu á meðfe
Brotið á rétti Tómasar þegar hann var áminntur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar