Telja hækkun vegna skíðasvæðis of bratta

Frá því að skíðasvæðið á Tindastóli í Skagafirði var tekið í notkun árið 2000 hefur skíðadeild Tindastóls séð um reksturinn. Nýverið sagði deildin upp samningi sínum við sveitarfélagið og taldi reksturinn vera orðinn of umfangsmikinn til þess að ráða við hann. Sveitarstjórn Skagafjarðar ákvað að leggja til fimm milljónir í viðbót í reksturinn.„Við náðum samkomulagi við skíðadeild Tindastóls um að taka að sér reksturinn, að minnsta kosti þennan veturinn og það er auðvitað gríðarlega ánægjulegt,“ segir Magnús Barðdal, sveitarstjóri í Skagafirði.Ekki var einhugur í sveitarstjórninni. Fulltrúi minnihlutans vildi sjá reksturinn boðinn út og telur hækkunina, sem nemur rúmlega 22%, vera of bratta.„Það er þannig með þennan rekstur, eins og allan rekstur, það hefur aukist kostnaðurinn og það er lík
Telja hækkun vegna skíðasvæðis of bratta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar