Framkvæmdastjóri N1 segir virkilega ánægjulegt að fá að taka þátt í því að koma Burger King keðjunni afur inn í veitingaflóru Íslendinga eins og tilkynnt var um í morgun. Félagið 1954 ehf. hefur tryggt sér sérleyfið fyrir þessum vinsælu hamborgum hér á landi en að því standa N1 og Skúli Gunnar Sigfússon sem oftast er kenndur við Subway.