Eftirspurnin eftir miðum á seinni leik Íslands og Portúgals um sæti á HM kvenna í fótbolta reyndist mun meiri en framboðið. Því verður dregið um það hverjir fá að mæta á Laugardalsvöll þann 5. desember til að sjá mögulega stelpurnar okkar komast í fyrsta sinn á heimsmeistaramótið.