Frumvarp allsherjar- og menntamálanefndar um brottvísunarstöð var samþykkt með hraði á Alþingi. Frumvarpið var lagt fram í gær og fór í gegnum þrjár umræður áður en það var samþykkt í gærkvöldi.Þingið samþykkti lög um brottvísunarstöð í fyrra og átti hún að taka til starfa 1. desember. Erfiðlega hefur gengið að finna húsnæði undir stöðina á Suðurnesjum og því þurfti að fresta gildistökunni. Er nú gert ráð fyrir að stöðin taki til starfa 1. desember á næsta ári.Þingmenn Framsóknarflokks sátu hjá við atkvæðagreiðsluna en þingmenn allra annarra flokka greiddu atkvæði með frumvarpinu.Ríkið hafði augastað á þessu húsnæði að Klettatröð 8 á Ásbrú. Samningar náðist hins vegar ekki og enn er leitað að húsnæði.RÚV / Anna Lilja Þórisdóttir