Brotið var gegn réttindum læknis þegar honum var veitt áminning í starfi á Landspítala og vinnuframlag hans afþakkað. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis í áliti sem fréttastofa hefur undir höndum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er læknirinn sem um ræðir Tómas Guðbjartsson.