Varð þreyttur á fylleríinu og gaf félaganum hassköku

Dómari við Héraðsdóm Vestfjarða sýknaði mann á dögunum af ákæru um að hafa af gáska og á ófyrirleitinn hátt stofnað heilsu annars manns í augljósan háska.Maðurinn fékk kunningja sinn í heimsókn í nóvember fyrir tveimur árum. Eftir að þeir höfðu setið að sumbli um stund gaf húsráðandi hinum hassköku. Þá greindi á um hvort gesturinn hefði verið upplýstur um innihald hennar eða ekki.Maðurinn sem var ákærður sagði hinn hafa komið í heimsókn meðan húsráðandi var að heiman. Gesturinn hefði drukkið nokkra bjóra meðan hann beið og þeir síðan haldið drykkju áfram. VILDI FARA AÐ SOFA Húsráðandi sagðist að lokum hafa verið orðinn þreyttur á fylleríinu. Hann hefði fengið köku að gjöf og gefandi sagt að hún væri góð ef menn ættu erfitt með að sofna. Hann hefði því gefið félaga sínum slíka köku og kv
Varð þreyttur á fylleríinu og gaf félaganum hassköku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar