Þingið samþykkti viðamiklar breytingar á barnaverndarlögum

Frumvarp Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um heildarendurskoðun á barnaverndarlögum var samþykkt á Alþingi í gærkvöldi. Stjórnarandstaðan lagði upphaflega til að málinu yrði aftur vísað til ríkisstjórnar til frekari vinnslu en greiddi atkvæði með frumvarpinu eftir að gerðar voru breytingar á því í velferðarnefnd.Eitt af því sem fékk stjórnarandstöðuna til að styðja frumvarpið var samkomulag um að flýta endurskoðun á kaflanum um fóstur en þinginu bárust margar athugasemdir um fyrirkomulag fósturmála og eftirlit með fósturheimilum. NÝTT RÁÐ FÆR VÍÐTÆKAR HEIMILDIR Ein helsta breytingin felst í að barnaverndarráð verður sjálfstætt stjórnvald á vegum ríkisins og fær úrskurðarvald í viðkvæmum og íþyngjandi barnaverndarmálum. Ráðherra skipar sjö aðalmenn í ráðið til fimm ára í senn o
Þingið samþykkti viðamiklar breytingar á barnaverndarlögum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar