Rússlandsher drap tvo og særði 41 í loftárásum á borgina Zaporizhzhia í suðausturhluta Úkraínu í morgun. Eitt ungbarn og þrjú börn á aldrinum 4, 6 og 16 ára eru á meðal hinna særðu.Almannavarnir Úkraínu segja að ein sprengjan hafi hæft fimm hæða fjölbýlishús. Rússar gera ítrekaðar loftárásir á Úkraínu að næturlagi.Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hótaði því í síðustu viku að árásirnar yrðu „mun sársaukafyllri“ eftir gagnárásir Úkraínu, ekki síst á Krímbrúna sem tengir Krímskaga við Rússland. REFSIAÐGERÐIR Í UNDIRBÚNINGI Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kynnti í gær tillögur að nýjum refsiaðgerðapakka gegn Rússum. Hann verður sá 22. í röðinni verði hann samþykktur.Von der Leyen segir að refsiaðgerðirnar nái meðal annars til 60 banka og viðskipta á raf