Nýtt heimsmet í jólaljósadýrð

Metið var staðfest um helgina af þýsku metskráningarstofnuninni, við heimilið eru flest jólaljós á einkalóð. Þau eru 901.485 talsins og fjölskyldan og aðstoðarfólk hafa verið að síðan í ágúst.„Lífstíðarmarkmið og draumur rættust. Að dag einn slægi ég út Ameríku með jólaljósum er með ólíkindum. Fyrir það er ég afar þakklát,“ Sabine Gollnhuber, eigandi „jólahússins“ í Bad Tatzmannsdorf.Fyrra met var frá New York-ríki en þar voru ljósin um sjö hundruð þúsund. Á lóð Gollnhuber-fjölskyldunnar eru líka tvö hundruð og sex uppblásnar jólafígúrur. Þau leyfa fleirum að njóta með sér, því garðurinn er opinn gestum á hverjum degi til 6. janúar.
Nýtt heimsmet í jólaljósadýrð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar