Foreldri lét fúkyrði falla í garð táningsstúlku sem dæmdi leik tíu ára drengja á körfuboltamóti í Laugardalshöll um helgina. Áhorfandinn sagði stúlkunni að drepa sig. Vísir greindi frá atvikinu. Samkvæmt upplýsingum Vísis varð atvikið í leik Stjörnunnar og Tindastóls. Þjálfari Stjörnunnar mun hafa mótmælt dómi í leiknum og í kjölfarið hafi áhorfandi úr röðum stuðningsfólks Stjörnunnar beint fúkyrðum að dómaranum....