Stefna á að opna fimm Burger King-staði

Stefnt er á að opna fimm Burger King-veitingastaði á Íslandi á næstu árum. Fyrsti staðurinn verður opnaður á bensínstöð N1 við Bíldshöfða.N1 og Skúli Gunnar Sigfússon hafa stofnað félagið 1954 ehf. sem samið hefur við Burger King um sérleyfi til starfseminnar á Íslandi. Heiti íslenska félagsins vísar til stofnárs Burger King-fyrirtækisins í Bandaríkjunum.Fyrsti staðurinn verður rekinn með veitingasölu inni á staðnum og í bílalúgu.Burger King-staðir voru starfræktir á Íslandi frá 2004 til 2008. Rekstrinum var hætt skömmu eftir hrun.
Stefna á að opna fimm Burger King-staði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar