Auglýsingakaup íslenskra fyrirtækja innanlands drógust saman um 416 milljónir króna á síðasta ári. Innlendi auglýsingamarkaðurinn hefur skroppið saman um fjórðung að raunvirði frá 2016 þegar hann var öflugastur eftir hrun. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Hagstofunnar á auglýsingakaupum.Innlend fyrirtæki vörðu meira en helmingi auglýsingafjár síns í viðskipti við erlenda miðla, einkum stórfyrirtækin Meta og Alphabet. Stór hluti þeirra auglýsingakaupa beinist þó að erlendum viðskiptavinum, svo sem vegna ferðaþjónustu. 52 prósent auglýsingafjárins renna úr landi og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Hlutfallið var um 30 prósent árin 2013 til 2017 en hefur hækkað á hverju ári síðan þá ef covid-árið 2020 er undanskilið. Auglýsingakaup íslenskra fyrirtækja námu 30,5 milljörðum króna í fyr