Elín Dröfn Jónsdóttir hefur tekið við starfi markaðsstjóra Blue Lagoon Skin Science. Hún hóf störf hjá félaginu árið 2020 sem sérfræðingur í vöruþróun. Undanfarin ár hefur hún tekið virkan þátt í uppbyggingu vörumerkisins, bæði við þróun nýrra vara og á sviði markaðsmála.