Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, sem meira en vini og hefur sagt að þeir hafi orðið ástfangnir. Trump hefur ítrekað sagt að samband þeirra sé frábært. Hann hefur tekið afstöðu með Kim gegn Suður-Kóreu og heitið því að geta fengið einræðisherrann til að gefa frá sér þau kjarnorkuvopn sem hann hefur látið framleiða. Kim hefur þó ekki svarað símtölum frá Trump og bréfi sem reynt var að koma til Norður-Kóreu var skilað.