Lögreglan rannsakar árás á feðga í Mjóddinni í Breiðholti að kvöldi 26. september sem stórfellda líkamsárás. Þrír eru með stöðu sakbornings og er einn þeirra grunaður um að hafa slegið annan feðganna í höfuðið með glerflösku. Vísir greindi fyrst frá málinu. Tilkynnt var um árásina á ellefta tímanum um kvöldið. Fimm til tíu ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára...