Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést við vinnu sína á lóð Vesturhóps 29 í Grindavík 10. janúar 2024, hafa kært til ríkissaksóknara ákvörðun héraðssaksóknara frá 9. nóvember 2026 um að fella niður sakamál vegna andláts hans. Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, er fyrirsvarsmaður aðstandenda og stendur einnig að kærunni.