Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést við vinnu í Grindavík í janúar 2024, eru ósátt við ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður mál vegna andláts föður þeirra. Þau hafa kært ákvörðunina til ríkissaksóknara og vilja að ákæra verði gefin út eða málið rannsakað betur.Greint var frá því í síðustu viku að héraðssaksóknari hefði fellt niður mál vegna andláts Lúðvíks. Hann vann að því að fylla í sprungu sem myndaðist í jarðhræringunum í Grindavík. Fimm höfðu réttarstöðu sakbornings.Börn Lúðvíks krefjast þess aðallega að ríkissaksóknari felli ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi og að ákæra verði gefin út gegn þeim sem höfðu réttarstöðu sakbornings, öllum eða einhverjum þeirra. Þau telja að ákæra eigi viðkomandi fyrir manndráp af gáleysi og brot á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöð